Færsluflokkur: Sjónvarp

Textafölsun RÚV í þágu pólitísks rétttrúnaðar

Í rómantísku gamanþáttunum Cold Feet (Haltu mér, slepptu mér) í gær var þýð­ing­ar­villa með vísvit­andi um­turn­un á texta.

Adam (James Nesbitt) og Rachel (Helen Baxendale) reyna að eignast barn, en gengur illa, með hans eina eista, unz þar kemur, að þau reyna tæknifrjóvgun, rándýra, sem þó dregst, að beri nokkurn árangur. Loks kemur í ljós, að Rachel sjálf getur ekki eignazt barn vegna skemmdar í móðurlífinu. Falsþýðingin er áberandi og afar umhugsunarverð.

LÆKNIR: Im afraid there is a problem. You are suffering from a condition known as partial Asherman [Asherman’s Syndrome, AS]. It´s extremely rare, but sometimes, during the curettage stage of the D & C following a termination, the lining of the womb can be damaged. As a result, little adhesions can develop which cause the walls of the uterus to stick together. If this happens, then the chances of conceiving again are extremely remote.

Til skýringar: D & C abortion er aðallega framkvæmd á fyrstu 12 vikum meðgöngu, D = dilation, útvíkkun leghálsins, C = curettage, útskröpun, að skera á fylgjuna og fóstrið með stálhníf og skrapa það í pörtum út úr leginu, en þá getur yfirborð (lining) legveggjarins skaddazt og af því hlotizt, að legveggirnir límast (gróa) saman. Þegar það gerist, eru litlar líkur á að þungun geti haldið áfram (með festingu frum-fósturvísis í legveggnum), en þó er AS "treatable", möguleiki á lækningu á þessu. (Fróðleg grein er hér.) En rangt er, að Asherman’s Syndrome sé "extremely rare", því að 6 til 30% kvenna geta orðið fyrir þessu eftir D & C-fóstureyðingu.

En hvernig var enski textinn í Cold Feet í gærkvöldi þýddur í Sjón­varpinu? Þannig: "... Þú ert með kvilla sem kallast Asherman´s. Hann er sjaldgæfur, en kemur eftir fósturlát [sic!]. Slímhúðin inni í leginu skaddast þannig að legveggirnir límast saman ef svo má segja. Þá eru afar litlar líkur á frjóvgun að nýju ..." Þarna var ekkert minnzt á rétta textann: "during the curettage stage of the D & C following a termination" (um áðurnefndar virkar aðgerðir til að fyrirkoma fóstrinu), heldur sett orðið "fósturlát" í staðinn!

Þetta er makalaust dæmi um fölsun við þýðingu og nærtækast að hér ráði einhver socio-pólitísk fælni við að leyfa óþægilegum staðreyndum að koma í ljós um hörmuleg áhrif fóstureyðinga. RÚV er þannig komið í sama þjón­ustu­hlutverk dauðamenningarinnar og þeir 40 þingmenn sem 13. maí greiddu róttækasta fósturdeyðingafrumvarpi Norðurlanda atkvæði sitt!

Þetta er enn eitt dæmið um, að ekki er hægt að treysta RÚV.

En lítum hér á framhald textans í Cold Feet :

RACHEL: - But, can´t it be cured?

LÆKNIR: - There is a procedure, but I´m afraid there is no guarantee of success. In fact, I would be misleading you if I would have given you any cause to think that this condition can be overcome.

ADAM: - So, ... can the egg not be fertilized outside and put back into Rachel?

LÆKNIR: - The sperm bank is helpful, yes, but the apparatus to sustain a pregnancy just does not exist.

RACHEL: - Can I have children?

LÆKNIR: - It will be most unlikely.

 

Helen Baxendale's Rachel will get a tribute

Helen Baxendale ásamt nokkrum helztu leikurum í Cold Feet.

 

Eins og þegar er komið fram, eru samt til leiðir til að reyna að ráða bót á þessum Asherman´s kvilla (sbr. einnig aths. hér á eftir).

JVJ.


Blaðra sem breyttist í barn?

Þótt hér sé verið að leika sér að myndtækni, fer ekki hjá því, að þetta myndband minni á hið viðkvæma, dýrmæta mannslíf sem kona gengur með eftir getnað.

Sannarlega var sorglegt hvernig Rúv hagaði sér gagnvart fyrirbænum fyrir ófæddum börnum á nýliðnu ári – skammarlegt raunar.

Hið ófædda barn er frumforsenda framhaldslífs þjóðarinnar. Það er ekki alltaf stórt að vöxtum, sem mestu máli skiptir fyrir líf okkar. Hver vill skipta á barni sínu og tíu milljóna jeppa – eða skuldlausri glæsivillu? Enginn með réttu ráði. Og enginn með réttu ráði eyðir barni sínu fyrir fæðingu, má bæta hér við. Barnið er í höndum Guðs, eins og segir í bók hans:

  • "Þú hefur myndað nýru mín, ofið mig í móðurlífi. Ég lofa þig fyrir það að ég er undursamlega skapaður, undursamleg eru verk þín, það veit ég næsta vel. Bein mín voru þér eigi hulin, þegar ég var gerður í leyndum, myndaður í djúpum jarðar. Augu þín sáu mig er ég enn var ómyndað efni, ævidagar mínir voru ákveðnir og allir skráðir í bók þína áður en nokkur þeirra var til orðinn. Augu þín sáu mig er ég enn var ómyndað efni, ævidagar mínir voru ákveðnir og allir skráðir í bók þína áður en nokkur þeirra var til orðinn." (1)
  • "Þótt faðir minn og móðir yfirgefi mig, tekur Drottinn mig að sér." (2)
  • "Hvort fær kona gleymt brjóstbarni sínu, að hún miskunni eigi lífsafkvæmi sínu? Og þó að þær gætu gleymt, þá gleymi ég þér samt ekki. Ég hef rist þig í lófa mér." (3)

Sæll er sá sem Guð leiðbeinir, sá sem hafnar ekki ögun Hins almáttka. (Jobsbók 5:17). Hafnaðu ekki vizkunni, hún mun varðveita þig, elskaðu hana og þá mun hún vernda þig. (Orðskviðirnir 4:6).

1) Sálm. 139.13-16.

2) Sálm.27.10.

3) Jesaja, 49.15-16.


mbl.is Breyttist blaðran í barn?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Lífsréttur

Höfundur

Lífsréttur
Lífsréttur

Information service about life issues – upplýsingaþjónusta um lífsverndarmál lifsrettur@yahoo.com - sjá nánar á höfundarsíðu (an English summary too). +netfang/e-mail: jvjensson@gmail.com

Des. 2019
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • Fóstur 20 vikna
  • 20 vikna fóstur
  • ..._13_1299472
  • 1178324855adb16
  • IMG_0734

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.12.): 77
  • Sl. sólarhring: 77
  • Sl. viku: 165
  • Frá upphafi: 32452

Annað

  • Innlit í dag: 45
  • Innlit sl. viku: 98
  • Gestir í dag: 43
  • IP-tölur í dag: 42

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband